Sólveig hún á afmæli, hún er 23 ára í dag, til hamingju með afmælið, til hamingju, til hamingju með afmælið, til hamingju!
Og erum við búnar að vera að bardúsa helling saman í dag í tilefni af því :o) Góður dagur í alla staði!
Byrjaði á æfingu á Brúðkaupinu bara í næstu götu, en við erum byrjuð að æfa í Langholtskirkju. Píanóið er staðsett fyrir aftan okkur á sviðinu eins og er gjörsamlega ómögulegt að heyra í því um leið og maður er sjálfur að syngja sem gerði það að verkum að við gátum ómögulega verið jöfn píanóinu heilt lag! Svo er allt að gerast í þessum búningamálum en síminn stoppaði varla á sunnudaginn. Allir að hringja og tékka á hinu og þessu.
Svo er það bara Næsti í 3 tíma í kveld. Aron þarf að skreppa á æfingu þannig ég hoppa bara aðeina þarna inn á meðan. Það er fínt því ég þarf alveg smá aukapening!
Svo verð ég að reyna að gera eitthvað í þessum sumarfiðring sem er í mér. Er alveg að fara yfirum! Næ ekki að njóta vetursins ef ég er með sumar á heilanum!
Bara Hjálmar í græjurnar og sóllampa í plönturnar!
mánudagur, 28. janúar 2008
Hamm amm namm?
Birt af jennzla kl. 18:04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Takk fyrir daginn elskan mín.... þú ert allavega klárlega búin að vera ljósasti punkturinn í dag! :)
knús til þín!!
með sól í hjarta
og bros á vörum...
ég finn það á mér að það verður bikiníveður á morgun
Skrifa ummæli