mánudagur, 26. febrúar 2007

Jæja, þá styttist í nemendatónleika, bara rúmur sólarhringur í þá! Æfingin í gær tókst þokkalega en hefði alveg getað gengið betur hjá mér. Ég var reyndar ekki upphituð og var frekar þreytt þannig það var ekki við miklu að búast.

Á morgun ætla ég að sofa út, fara í söngtíma og í ljóða-og aríudeild, fara svo heim í sturtu og taka mig til í rólegheitunum og mæta svo rétt fyrir 7 til að hita upp og fara yfir tríóið. Ætla ekki að pæla í neinu öðru allan daginn! Ehhh nema ég verð að halda einn nemendafélagsstjórnarfund :oÞ

Það var fínt í baunasúpunni :o) Var bara með Magic í hönd þar sem ég nennti ekki að skilja bílinn eftir og líka út af tónleikunum. Súpan bragðaðist vel og svo var kaka í boði sem var mjög góð en hrottalega væmin! Gat ekki klárað litlu sneiðina sem ég fékk mér ;o) Svo voru lögin úr Epli og eikum flutt fyrir okkur af leikurunum og tveimur hljómsveitarmeðlimum og er maður farinn að hlakka mikið meira til að sjá allt heila klabbið eftir það, já og langar kannski pínu til að hafa verið með ;o) En mér finnst Bingólagið samt flottast ;o) Bingóliðið mætir allavega tímanlega! Í nokkurn tíma voru nefnilega fleiri mættir ú Bingói en Eplum og eikum! En þar sem þau eru aðeins fleiri unnu þau á endanum ;o)

Keypti Coleman's sinnep úti...það er hrottalega gott! Er núna að bíta í samloku með Coleman's sinnepi, skinku, osti og gúrkum...Það er næstum því það besta!!! Fátæktar-útgáfan af þessari samloku er sinnep og skinka...mæli eindregið með að þið prófið þetta ef þið fílið sinnep...já og kaupið ykkur eina krukku af Coleman's þegar þið farið næst til London...en það er frekar sterkt!

Jæja, ætla að fara að gera eitthvað af viti!

laugardagur, 24. febrúar 2007

!BAMM!

Stundum, bara á einu sekúndubroti, kemur yfir mig skyndiþunglyndi!

Oft er ég þá búin að hafa mig til og á leiðinni eitthvað og svo allt í einu búmm! og ég nenni ekki að fara af stað, vil frekar kuðla mig inn í sængina mína, upp fyrir haus og gera ekkert nema anda.

Held samt að í þetta skipti, eins og í flest önnur skipti, hífi ég mig upp á rassgatinu og drulli mér af stað!

Baunasúpa bíður...ef það vinnur ekki á skyndiþunglyndi hvað þá?

föstudagur, 23. febrúar 2007

Langaði til að blogga, bara veit ekki um hvað


Voðalega er maður klikkaður!

Fór á Bingóæfingu í gær...hehe það halda alltaf allir að maður sé eitthvað crazy og sé alltaf að æfa Bingó ;o) ...það var rosalega gaman því ég er búin að vera í svo löngu hléi! Alger lúða! Erum komin með borðplötur og smá sessur á stólana og gátum því farið að leika okkur meira með það :o) Handrtinu kippt af manni og ég hélt að ég kunni ekki neitt í textanum svona aftarlega í leikritinu en ég kunni oggupons...skulda samt örugglega mest af öllum eftir kveldið ;o) Fer að hafa tíma fyrir textayfirferð eftir þriðjudaginn ;o)

Tónleikar á þriðjudaginn! Allt í einu er lagið sem var best hjá mér orðið verst! Silver orðið fínt en alltaf hægt að bæta, ALLTAF! Dúettarnir búnir að taka stakkaskiptum en þá er tríóið bara farið í ruglið! Er að fara á æfingu með Aroni og Hildigunni eftir hálftíma...sjáum hvað setur!

Mjög skrítið að í vetur er ég oft búin að vera illa stemmd fyrir undirleikstímana! Stundum er það af því að ég er að koma úr nuddi og veseni, en stundum bara veit ég ekki ástæðuna! Verð ég kannski oftar andvaka á þriðjudagskvöldum en önnur kvöld?? Mig minnir að það sé líka oft ástæðan!

Og ekki svaf ég mikið í nótt!

Verð að ná að sofa um helgina og á mánudagskvöldið, annars verður þetta bara í ruglinu hjá mér held ég!

Nema maður púlli sírópið á þetta ;o) Ætli það virki á þreytu í röddinni?

Þessa dagana þykist ég vera búin að læra að segja nei ;o) Ég er oft næstum því búin að drepa mig úr bissínessi í vetur og vil því meina að það sé búið að kenna mér að ofhlaða mig ekki verkefnum...er með svona nýs skólaársheit sem tekur gildi í haust...ætla ekki að vera í nemendafélagsstjórn, vinna minna og ekki taka þátt í neinu stóru verkefni með Hugleik...heh við sjáum hvernig það fer ;oþ

Ég er nefnilega loksins, loksins, LOKSINS búin að ákveða að einbeita mér að söngnum...það er samt ennþá bannað að spyrja mig afhverju ég fer ekki í leiklistarskóla! En söngurinn skal það vera! Hann á bara vel við mig og mér líkar sjálfsaginn sem fylgir honum...er svona smátt og smátt að byrja að vera harðari við mig :o)

En það fyndna er að nuddarinn minn (sem er miklu meira en nuddari) segir að ég eigi að hætta að vera svona ströng við mig! Hahahaha og mér finnst ég svo óströng við sjálfa mig ;o) Ég held bara að ég þurfi að leyfa mér að eiga frítíma :o) Því þegar ég tak mér pásur núna þá er ég alltaf með samviskubit því ég ætti að vera að gera svona 1000 aðra hluti sem sitja á hakanum!!!

En maður verður líka að slaka á ;o)

Gaman að því hvað maður getur bullað alveg hreint ótrúlega miklu um ekki neitt út úr sér! Kannski maður láti við staðar numið hér ;o)


Leyfði líka einni mynd af krúttabróður mínum sem varð 2 mánaða seinasta sunnudag að fljóta með :o)

fimmtudagur, 22. febrúar 2007

Nú er nóg komið!

Ég hef nú ákveðið að afneita íslenskum bloggkerfum! Þau eru alltaf með vesen hvert og eitt einasta!

Því hef ég ákveðið að snúa aftur til þess kerfis er ég hóf bloggferil minn á, en með nýju nafni. Man ekki eftir því að blogger hafi nokkruntíman brugðist mér :o)

Við sjáum hvað setur ;o)

En núna sit ég heima, Don Giovanni í gangi í DVD-inu, m&m-poki nr. 2 frá því á þriðjudaginn hefur verið opnaður og ég bölva og ragna bloggkerfum heimsins í staðin fyrir að drullast til að mæta í tónlistarsögutíma! Leti, leti, eintóm leti!

Ætti líka að vera að fara yfir textann minn í Bingói...er að fara á æfingu seint í kveld og æfa viðskiptaromsusenuna með Víði...það er texti sem ég kvíði fyrir að þurfa að læra...hef ekki hugmynd um hvað það þýðir sem ég er að segja! Og þetta eru billjón löng og flókin orð úr viðskiptafræðiheiminum!!! BRA!

Ætti nú að geta fundið einhvern til að hjálpa mér að skilja þetta ;o)

En þetta mun nú örugglega verða mjög töff sena :o) Nei, bíddu..hún VERÐUR flott! Ég er bara búin að ákveða það :o)

Hei, já, var í London! Keypti haug af DVD-myndum, nokkra CD og mjög lítið af fötum svona miðað við að þetta er ég...en ég ætlaði ekki að kaupa nein föt...þá endar maður með kjól, bol, peysu, ermar, pils, 5 leggings og einar sokkabuxur...hefði verið miklu verra ef ég hefði bara ætlað að kaupa smá ;o)
Fór líka í Chappell of Bond Street og keypti fuhullt af nótum :o) Hefði getað keypt miklu meira!! En maður verður að skilja eitthvað eftir svo hægt sé að gefa manni gjafir ;o)
Mamma missti sig líka í klassísku deildinni í HMV og keypti fyrir mig nokkra diska með nokkrum mismunandi sóprönum svo ég geti kynnt mér svona hvað virkar ;o) Svo keypti hún líka nokkrar óperur á dvd og cd sem maður bara gengur í ;o) Gaf mér líka raddsögu Renée Fleming, en hún skrifaði hana sjálf og er svona raddævisaga hennar og er víst mjög hollt fyrir söngnemendur að lesa hana, og ég er bara búin með 3 kafla en ég get alveg tekið undir það! Bókin heitir The inner voice og er þetta holl lesning fyrir allar raddir!
Auðvitað var kíkt í óperuna, en við mamma vorum þær einu sem gerðum það (furðulegt!?!?!) ;o) Fórum á Il Trovatore og var þetta æði! Mezzoinn í sýningunni var klikkuð! Ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins!!! Hún heitir Stephanie Blythe og er með fáránlega rödd! Skyggði algerlega á stjörnutenórinn sem var í hlutverki Manrico (Marcelo Álvarez) og fékk 10X betra klapp en hann!
Fór líka á Queen-showið "We will rock you" og vá hvað það var fáránlegt! Þá í bókstaflegri merkingu! Söguþráðurinn er eitt mesta crap sem ég hef séð! Hefðu fengið betri sögu frá 6 ára barni! En aðalsöngkonan var vibba góð en aðalsöngvarinn var ekki spes og réði bara alls ekki við Bohemian Rapsody! Þarf ekki að fara aftur á þessa sýningu!
Nú svo sá maður Harry Potter á sprellanum og reykja! Fór sumsé að sjá Equus. Þar var einn að leika vel og það var gaurinn sem lék sálfræðinginn (sem er sami gaur og leikur Uncle Vernon í Harry Potter) og fær Daniel Radcliffe plús fyrir að það var ekki vottur af Harry í honum, en ekki var hann samt að sýna stjörnuleik! Restin af kastinu var á mjög lágu amatörstigi í leik (sumsé amatör notað hér í neikvæðri merkingu þess orðs). Svo held ég að verkið hafi ekki elst vel, en ég ætla að kíkja á myndina svona til að vera alveg viss um það. Annars hefur þetta verið glötuð uppfærsla! Það flottasta við verkið voru hestagervin! 6 gaurar léku sumsé 6 hesta og voru með mjög flottar grímur og hófa (sem heyrðust svona hófahljóð í) og í flottri líkamsstöðu sem líkti eftir frampartinum á hesti. Very nice!
Svo var líka étið helling á kínverskum, ítölskum, indverskum stöðum og á amerískum steikarstað!
Sá líka mann hlaupa á Oxford street í engu nema netasokkabuxum og Polo-bol...tvisvar sinnum! Það var skemmtilegt!