miðvikudagur, 18. apríl 2007

Sólin skín

Og allt að fara fjandans til! Held að þetta sé afleiðing ólifnaðar Reykvíkinga seinustu misseri já og sukks og svalllifnaðar! Því ákváðu guðirnir að brenna aðaluppsprettu ósómans - Pravda!

Bara verst að þeir skuli hafa tekið Rosenberg með! Ég græt það að hann hafi þurft að fylgja með! Var það nauðsynlegt? Þar hittist einungis hið prúðasta lið til að njóta (mis)blíðra tóna, ræða málin eða grípa í spil.

Þetta er næstum því á við að brenna sunnudagaskólann!

Eða þannig...!

Og svo bara skellt einu brennandi flóði líka inn...veit ekki hvað það átti að fyrirstilla...en vegir guðs eru órannsakanlegir!

En ég sit annars ein heima og neyðist víst til að læra því allir duglegu söngskólavinir mínir eru að gera það sama því stutt er í próf og því mesta firra að ætla að dröslast niður í bæ í reyksvælu! Og hinir fáu vinir mínir sem eru búsettir í borginni og eru ekki að læra söng eru annaðhvort að djamma með hinum vinum sínum eða eru fjölskyldufólk :o) Og svo er ég eiginlega ekki með nein símanúmer í nýja símanum mínum...!

Ég er að pæla í að panta mér svona vin til að geyma inn í skáp nema þegar mig vantar einhvern til að hanga með...þá dreg ég hann út og hann verður að hlægja að öllu sem ég segi og á að vera fyndið og alltaf vera sammála mér og finnast ég frábærust og æðislegust!

Nei, annars ég held það væri leiðinlegt...ég myndi örugglega skila honum eftir viku!

Enda ætti ég að vera að læra...Bjarki ákvað að flýta tónlistarsöguprófinu um 6 daga! Sex dagar telja mikið þegar maður er að læra fyrir próf! En það jákvæða er að með þessari breytingu get ég einbeitt mér meira að hljómfræðiprófinu sem er rúmri viku á eftir og krefst í raun og veru miklu meiri einbeitingar!

Ég ætlaði nú samt að segja ykkur eitthvað...man ekki hvað það var þannig það getur ekki hafa skipt máli!

Þannig núna ætla ég að fara að horfa á House (sem ég er orðin háð!) og læra!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já er það ekki þannig að þegar sumar og vetur brenna saman þá verður gott sumar?

Nafnlaus sagði...

þú ert nú meiri fíbblið. brenna sunnudagaskólann..það er samt alveg hugmynd því þá er ekki verið að stöffa ruglinu ofan í börn í músaformi..ég tala af reynslu..vann í 2 eða 3 ár við sunnudagaskólann...og það eina sem fór fram þar var að kúga pening út úr börnunum..þetta var alveg ógeðslegt..sko þú kaupir nammi fyrir 200 kall en barn í afríku getur keypt sér góð föt fyrir það..gefðu nú peningana þína til þeirra..og börnin komu með baukana sína og fylltu kirkjubaukinn á nokkrum mánuðum (sem var stór) og vissu ekki betur en að það færi óskipt til afríkubarnanna...oj bara ojj ojj ojj..ég þoli ekki íslensku þjókirkjuna..hvaða helvítis ræbblar kúga pening af börnum út á samviskunni?? mér finnst þetta ljót fólk..once you've seen inside...vá það bara blossar í mér reiðin þegar e´g hugsa um þetta..lena kom t.d. með þúsundkall í klinki sem hún var búin að vera safna í 4 mánuði...hún átti nú skilið að fá að eyða því sjálf..það er ekki sin og þessir krakkar komi frá ríkum heimilum...oj ojoj sunnudagaskóli..já brennum hann