þriðjudagur, 29. janúar 2008

Þreytudagur

Ég er úrvinda í dag!

Las svo eina af stjörnuspánnum mínum (já ég les alltaf nokkrar og vel svo síðan þá sem mér finnst best ;oÞ) og hún sagði mér að ég væri þreytt í dag, og að reyndar væri þetta erfiður dagur fyrir alla, en ég þyrfti ekkert að kippa mér upp við það því þetta yrði bara þessi eini dagur og allir þyrftu jú einhvern tíman að hlaða batteríin.

Hresstist merkilega mikið í skapinu við þessa lesningu, en er enn þreytt...og er að pæla í að njóta þess bara smá.

Ætla að heimsækja hinn unaðslega heim kvikmyndanna í DVD-formi!!!

...eða kannski taka öll fötin mín út úr skápnum og fara yfir þau og uppgötva hvað ég á mikið af fötum svo kauppúkinn í mér róist ;o)

1 ummæli:

Guðrún Sóley Sigurðardóttir sagði...

vælukjói!

...oh nei samt ekki

hvernig höndlarðu þetta kona!!!

mættir alveg henda smá af gleði og jákvæðni á mig við tækifæri

með skóflu helst